Þessi með skrítnu hökuna

Ég hlustaði aldrei á NKOTB, var kannski aðeins of ung, og mér finn450629Ast þessi mynd af þeim ansi hallærisleg. Það hefur samt ekki komið í veg fyrir það að núna þegar fréttir af endurkomu þeirra hafa verið í algleymingi á Netinu hef ég velt hökunni á þessum þarna næst-lengst til vinstri alveg ótrúlega mikið fyrir mér, svo mikið reyndar að mig dreymdi hann um daginn og það engann venjulegan draum!

 

Ég var stödd á óræðum stað með einhverjum manni sem var að kynna fyrir mér starfssemi einhverrar stofnunar sem hafði það að markmiði að útskýra fyrir almenningi að HIV/AIDS smitaðist ekki með munnvatni. Hann kynnti mig fyrir "gaurnum með hökuna" sem reyndist vera með AIDS (ekki HIV) og bauð mér að fara í sleik við hann. Ég þverneitaði auðvitað og sagðist ekki kyssa aðra en kallinn minn þó vissulega væri vel boðið. Við spjölluðum svo alveg heillengi saman og hökugaurinn var í einhverjum voða egómínus og fannst hann ömurlegur og ég var að reyna að peppa hann upp því þetta reyndist allra vænsti gaur. Til að gera langa sögu stutta þá endaði með því að við fórum í sleik en ekki vegna neins ástarbríma, ó nei, við vorum að reyna að sleppa undan bófum!! Og það kom í ljós að hökugaurinn var með klofna tungu!

 

37477786Þeir eru nú svolítið sætari núna finnst mér en hökugaurinn er enn þá með skrítna höku. Finnst hafa ræst best úr þessum dökkhærða næst lengst til vinstri á þessari mynd. 


mbl.is New Kids on the Block snúa aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi með skrýtnu hökuna heitir Danny. Hinn heitir Jon og er mjög feiminn.

H (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 18:04

2 Smámynd: Helga Dóra

Donny Walberg (eða hvernig sem það er skrifað) Bróðir hans Mark Walberg.  Ég var að fíla þá sko. Elskaði Donny alltaf.....

Helga Dóra, 10.4.2008 kl. 17:30

3 Smámynd: Marilyn

Ég fíla Mark en ég er ekki að höndla Donny á þessum myndum, eitthvað sem böggar mig. En svei mér þá, hann er samt skástur á eldri myndinni, er viss um að ég hefði verið skotin í honum ef ég hefði eitthvað verið inni í þessu New Kids æði.

Marilyn, 11.4.2008 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér er ég, hér er ég

Marilyn
Marilyn
... bara allt fínt, en þú?

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband