Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Það sem fyndið er að segja

Dóttir mín er að skoða íslenskuna þessa dagana og nota orð sem hún kann ekki eða skilur ekki alveg, stundum með skondnum niðurstöðum. Hér eru orð dagsins og gærdagsins:

"Ég vil ekki borða þrjóskið" - brjóskið á kjúklingaleggnum eitthvað að þvælast fyrir.

"... Var það út af ástinni ungu sem ég ber, eða var það fryggðin sem kallaði að mér" - Stóð ég úti í tungsljósi í alveg nýju ljósi.

 


Hvernig ofbeldi er það?

"Bandaríski tyggjóframleiðandinn Wrigley's hefur sagt upp auglýsingasamningi við rapparann Chris Brown tímabundið eftir að hann var handtekinn fyrir að beita kærustu sína, söngkonuna Rihönnu, heimilisofbeldi."

Frekar skondið orðalag, þau voru ekki einu sinni heima hjá sér. Má ekki bara segja að hann hafi beitt hana ofbeldi - þarf þetta að kallast "heimilisofbeldi" vegna þess að þau eru kærustupar og er um eitthvað öðruvísi barsmíðar að ræða, var kannski ást í hverju höggi?? Heimilisofbeldi er greinilega ekki bundið við heimilið heldur makann og þar með ekki hægt að flokka þetta atvik hreinlega undir "vegaofsa" (rode rage). Þetta þýðir líklega að ofbeldi gagnvart fólki sem maður er ekki að sofa hjá reglulega er bara venjulegt ofbeldi eða kannski "kynbundið ofbeldi" ef það er af hinu kyninu?

Merkilegt að enn fyrirfinnist menn sem halda að það sé í lagi að tuska konurnar sínar til ef þær eru ekki að haga sér eins og þeim hentar, vona að hún lögsæki hann fyrir allan peninginn.


mbl.is Auglýsingasamningi Brown sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó boj

Gæinn er mættur í bæinn.

Fæddur 30.01.09 kl. 00:53, 17 merkur og 54 cm.

Hann er fallegasta mannveran á jörðinni - og þótt víðar væri leitað. 

Ég er að jafna mig eftir keisarann heima.

Framhald síðar. 

 


Hér er ég, hér er ég

Marilyn
Marilyn
... bara allt fínt, en þú?

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • anda
  • boom
  • ...img_1880
  • ...1810_767256
  • Jólakúla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband