Hips don´t lie

... og þær eru að drepa mig. Man ekki eftir að hafa verið með svona mikla grindarverki á síðustu meðgöngu og ekki svona snemma. Reyndar er hellingur sem ég man ekki eftir að hafi gerst á síðustu meðgöngu sem er að gerast núna. Bæði var ég ekki með fullri meðvitund síðast og auðvitað er líkaminn minn og mataræðið allt öðruvísi núna svo ég er að upplifa þetta á alveg nýjan hátt.

Ég er líka að verða fyrir gríðarlegri líkamsímyndarkreppu í hausnum á mér og oftast finnst mér ég ekkert vera ólétt heldur bara orðin feit aftur. Maginn á mér lítur nánast eins út núna og þegar ég var yfir 100 kg og ekki ólétt, ok kannski er það ekkert rétt en ég upplifi hann þannig. Vigtin er líka að færast upp á við sem hjálpar ekki til og mér finnst eins og ég sé bara í nákvæmlega sömu holdum og síðast þegar ég varð ólétt þó það muni um 20-25 kg þar á.

Eitt gerðist um daginn sem ég man eftir að hafi gerst áður en hefur ekki gerst í mjög langan tíma og það minnti mig á hvernig ég var... ég var að þvo mér um hárið í sturtunni og rak þá magann í sjóðandi heit blöndunartækin. Þetta gerðist nokkrum sinnum á meðan ég var sem feitust en ég fattaði þarna að þetta hefur ekki gerst alveg heillengi og fékk þar með einhvers konar staðfestingu þess að líkaminn minn hefði breyst og væri að breytast aftur. 

181704467v2_240x240_Front_Color-BlackSegi bara við sjálfa mig á svipaðan hátt og leiðinlegu stelpurnar í Romy og Michelle´s High School Reunion: You´re not fat, you´re pregnant you halfwit.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Takk fyrir að minna mig á Romy & Michelle var bara búin að gleyma henni , skemmtileg ræma það.

Ómar Ingi, 17.8.2008 kl. 13:09

2 Smámynd: Helga Dóra

Hehe,,,, þú lítur glimmrandi vel í kella mín.... Ég átti svona barmmerki þegar ég var unglingur og fannst það rosa fyndið... Pabba fannst ekkert fyndið við það að unglingurinn hans væri með þær yfirlýsingar að hann væri ófrískur....

Helga Dóra, 17.8.2008 kl. 13:12

3 Smámynd: Brussan

Stórt knús til þín...þú ert mögnug

Brussan, 17.8.2008 kl. 13:27

4 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

tengi ...

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 17.8.2008 kl. 14:14

5 Smámynd: Marilyn

Háteigsvegi?

aaaahahaha fimmaurahúmor í boði Guðrúnar 

Marilyn, 17.8.2008 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér er ég, hér er ég

Marilyn
Marilyn
... bara allt fínt, en þú?

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband