Ertu með eðlu í nærbuxunum ...?

Eða ertu bara svona glaður að sjá mig?
mbl.is Faldi 44 eðlur í nærbuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Léleg nýting á fréttaefni

Ætla ekkert að setja út á efni fréttarinnar eða hvernig hún er unnin. Það sem ég ætla að setja út á er sóun á góðu tækifæri til að búa til fyndnari og tvíræðari fyrirsögn en "J.A. á skeiðvöllinn".

Jennifer Aniston heldur sér í formi á skeiðvellinum - er fyrirsögnin sem ég hefði notað. 


mbl.is Jennifer Aniston á skeiðvöllinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stolnar fréttir

Hvernig væri ef höfundur þessarar fréttar greindi frá því að upphaflega hefði verið sagt frá þessu máli í DV í morgun. Það er mjög einfalt, örlítið innskot kannski í fyrstu línuna "... en frá því var sagt í DV í morgun", bara svona sem dæmi. Þó ekki væri nema bara fyrir kurteisissakir.
mbl.is Anna Kristine var þjófkennd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekktust fyrir hvað?

Mér finnst þetta með ólíkindum. Ég er enginn ofuraðdáandi Jennifer Aniston en hún lék í vinsælustu gamanseríu heims í 10 ár og hefur leikið í þó nokkrum kvikmyndum, m.a. Marley and Me, The good Girl og fleirum. Konur kóperuðu hárgreiðsluna hennar í massavís á sínum tíma og hún á sitt eigið framleiðslufyrirtæki. En nei... hún er þekktust fyrir samband sitt við Brad Pitt skv. blaðamanni mbl.

Ég leyfi mér hér með að halda því fram að þrátt fyrir að Jennifer hefði aldrei gifst Brad Pitt væri hún samt sem áður jafn fræg og hún er í dag. Brad Pitt hefur einfaldlega ekkert með þetta að gera og frekar að hann hafi dregið úr henni en hitt. 


mbl.is Þröngar nærbuxur takk!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort er verra...

græðgin í Ringler, sem í fréttinni er sagður vera auðmaður og þarf því varla á peningunum að halda, að heimta peninga fyrir það eitt að skila því sem hann ekki á...

eða nískan í Jagger, sem hlýtur að hafa efni á að greiða fundarlaun fyrst hún hefur efni á að ganga með svona dýran hring (og tína honum!), að vilja ekki greiða manninum fundarlaun??


mbl.is Krefur Biöncu Jagger um fundarlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og eru þeir þá bara stikk-frí?

Ef Sjálfstæðismenn eru á móti frumvarpinu hefðu þeir þá ekki átt að kjósa gegn því í stað þess að sitja hjá, vitandi það að framsókn ætlaði að segja nei?

Þykjast þeir núna ætla að segja "við tókum ekki þátt í þessu" þegar skammast verður út í þá sem samþykktu frumvarpið. 

En í stað þess að taka afstöðu og standa og falla með henni ákveða þeir að gera ekkert. Svona svipað og þessi flokkur gerði í aðdraganda hrunsins. Ekkert. 

Með því að gera ekkert tóku þeir samt þátt í því að frumvarpið var samþykkt, hefðu þeir viljað að því hefði verið hafnað hefðu þeir getað sagt Nei en þá hefðu þeir auðvitað þurft að standa og falla með þeirri ákvörðun sem er miklu erfiðara en að sitja bara hjá og benda á hina. Þetta kallast yfirleitt aumingjaskapur eða heigulsháttur, take your pick. 


mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjartalaga feldur?

Hvað er með ritmálið á mbl þessa dagana. Taktleysi var orð sem rataði í eina grein - bein þýðing á enska orðinu tactless (vona að stafsetningin sé rétt á þessu hjá mér) sem nær væri að þýða sem "ónærgætinn" eða eitthvað í þá áttina.

Þetta er samt enn verra, fullkomlega hjartalaga feldur á hundi??!! sé fyrir mér að lappirnar standi feldlausar undan hjartalaga feldinum sem greyjið hvolpurinn erfði, jesús minn!


mbl.is Hjartalaga feldur á hundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sömu nöfnin - nýtt fólk

Skemmtilegt að halda sig við sömu nöfnin þegar maður finnur sér nýjan maka. Jennifer og Bradley og Brad (Bradley heitir hann víst "fullu" nafni) og Jennifer. Kemur alveg í veg fyrir svona óheppileg Freudian slip augnablik sem eiga það til að valda rifrildum.
mbl.is Aniston aftur á séns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta sýnir og sannar að ...

... það borgar sig fyrir neytendur að sniðganga bensínstöðvar. Allir samtaka eins og olíufélögin! koma svo!


mbl.is Olís lækkar lítrann aftur um 12,50 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ok skítt með sykurskattinn en...

afhverju að leggja skatt á kolsýrt vatn? Ef fólk á að minnka sykurneyslu í kjölfarið á þessari skattlagningu mætti þá ekki sleppa sköttunum á sykurlausa gosdrykki og annað sykurlaust dót - hélt að það fælist í nafninu "sykurskattur". 

Einnig legg ég til að kaup á grænmeti og ávöxtum verði gerð ódýrari á einhvern hátt. Gerum heilbrigðan lífsstíl aðgengilegri og ákjósanlegri, það minnkar álagið á heilbrigðiskerfið og sparar þar af leiðandi peninga í kjölfarið. Allir ánægðir, þjóð og þing. 


mbl.is Skattur á kex og gos í 24,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Hér er ég, hér er ég

Marilyn
Marilyn
... bara allt fínt, en þú?

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband