Ég sótti dóttur mína í leikskólann á föstudaginn og afţví ađ veđriđ var svo gott voru allir krakkarnir enn ţá úti, ţ.e.a.s. ţeir sem átti enn eftir ađ sćkja. Ég var í gallabuxum og síđri röndóttri peysu međ glimmerţráđum í sem elskuleg vinkona mín gaf mér í jólagjöf. Eitt spurulasta stúlkubarn norđan Mississippi kemur til mín og spyr "ertu ađ fara í veislu?", ég neita en hún gefst ekki upp "afhverju ertu ţá svona fín?" - "ég var nú bara í vinnunni" segi ég ţá en dóttir mín grípur fram í og segir hátt og skírt "ŢAĐ ER VEGNA ŢESS AĐ MAMMA MÍN ER GELLA!". Ég dó nćstum og leikskólakennararnir skellihlógu, ég vissi ekki ađ dóttur minni fyndist ég vera gella, reyndar sagđi hún svo í bílnum á eftir ađ pabbi sinn vćri líka gella.
En dóttir mín er snillingur og ég er svo sannarlega gella!
Fór í ţrítugsafmćli til vinkonu minnar á föstudagskvöldiđ í flegnasta kjól heimsins. Viđ vorum allar stelpurnar í einhverju gellustuđi og langađi til ađ vera sćtastar svo viđ fórum á Players ţar sem nóg er úrvaliđ af fullum köllum til ađ segja okkur hvađ viđ erum ćđislegar. Rosalega var ţađ gaman ţó ég verđi ađ viđurkenna ađ fullir, íslenskir karlmenn séu oft á tíđum ákaflega sorgleg dýrategund. Og ég verđ ađ mćla međ hljómsveitinni Bermúda sem hélt uppi stuđinu. Söngkonan Erna er bara frábćr, falleg og yndisleg, hún söng eins og engill og var ótrúlega hress. Algjörlega frábćrt kvöld ef frá er taliđ svolítiđ vinkonudrama (fastir liđir eins og venjulega) sem tengdist mér ţó ekki neitt en smitađi ađeins út frá sér.
Athugasemdir
Ég held ég verđi ađ taka undir orđ dóttur ţinnar, ţú ert gella og ţađ sést langar leiđir.
María, 7.4.2008 kl. 23:17
Sonna er ađ vera í bata ţá verđur mađur svo mikil gella
Helga Dóra, 7.4.2008 kl. 23:32
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.