Gætið þess að halda stuðningi almennings

Ég ætla að byrja á að taka það fram að ég styð þessi mótmæli, ég styð baráttumál bílstjóranna og ég vona að þeim takist að fá stjórnvöld til að lækka álögur á bensín og olíu, koma hvíldaraðstöðunni í lag og allt það. Mér finnst meira að segja ákveðinn ljómi yfir því að stoppa umferðina, svona franskur sjarmi og kominn tími til að einhverjir mótmæltu af alvöru.

EN ... það sem ég sá í fréttunum í gær var svolítið sláandi, að tefja umferð til Keflavíkur, að meina fólki að komast framhjá með því að leggjast á vegabrúnirnar og berja í hliðina á bíl sem var að lauma sér framhjá - hvaða hagsmunabaráttu er það að þjóna? Mest varð mér samt brugðið yfir aumingja konunni sem öskraði að pabbi sinn væri að fá hjartaáfall. Mikið fann ég til með henni.

Augljóslega er hiti í mönnum en þeir verða að gæta þess að missa ekki stuðning almennings. Mér fannst flottara hvernig bílstjórarnir á Akureyri fóru að þessu, í samráði við lögreglu en samt að standa sína pligt, mótmæla og minna á að það er ekki enn búið að laga þetta.

Nú skilst mér að lögreglan meini vörubílum aðgang að miðbænum eða svæðinu í kringum alþingishúsið. Svolítið skrítið að alþingismenn og látið fólk njóti meiri verndar fyrir mótmælaaðgerðum en "venjulegt" fólk. En þá er bara að girða miðbæinn af með vörubílum, það er alveg hægt og einmitt án þess að loka af þessum margumtöluðu sjúkraflutningaleiðum. Einnig væri hægt að loka umferð í götum nálægt heimilum Alþingismannanna. Vekur meiri athygli þeirra og minni andúð almennings sem er bara að reyna að komast í gegnum daginn.

Áfram barátta!


mbl.is Buðu lögreglu upp á kaffi og vöfflur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er akki hægt að gera svona í "samráði" við lögregluna! Þeir misnota upplýsingarnar bara og loka götum líkt og við austurvöll á mánudaginn!! Lögreglan er fífl, þessir menn eru líka að borga of hátt eldsneytisverð en hlíða bara æðsta strump í blindni.

gunnar róbert (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 12:20

2 Smámynd: Marilyn

Ef aðalatriðið er að benda á sín umkvörtunamál, minna á sig en ekki að bögga fólk þá jú, er ekkert mál að gera þetta í samráði við lögregluna. Það má ekki gleyma því afhverju þeir eru að stöðva umferðina, ég trúi því að minnsta kosti ekki að þeir hafi gaman að því að tefja fólk en þeir gera það vegna þess að þannig skapa þeir umræður og eru sýnilegir með sín baráttumál. Almenningur á að rísa upp á afturlappirnar með þeim, en það gerist líklega ekki ef allir eru orðnir pirraðir og þreyttir.

Marilyn, 3.4.2008 kl. 15:28

3 identicon

Ég er pirraður og hætti því ekki fyrr en þessari skattpíningu líkur.

gunnar róbert (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 15:49

4 Smámynd: Ísdrottningin

Ef allir verða pirraðir og þreyttir á mótlælum gæti þetta endað með verkfalli og hvar stöndum við þá, horaður almúginn með snjáðar buddur og galtómar búðarhillur?

Stöndum með okkar fólki og beinum reiðinni til stjórnsýslunnar...

Ísdrottningin, 3.4.2008 kl. 16:40

5 Smámynd: Marilyn

Ég trúi ekki öðru en að flestir séu sammála því að stjórnvöld þurfi að gera eitthvað til að lækka þessar álögur því þær skila sér ekki bara með hærri útgjöldum í bílarekstri heldur verða flutningar á vörunum sem við kaupum hærri og það fer beint í vöruverðið. Erum ss. að borga skatta og tolla af öllu aftur og aftur og aftur.

En það eru ekki allir sammála um baráttuaðferðirnar og það er það sem þarf að gæta að, þ.e. að þeir sem eiga að standa saman geti gert það en séu ekki farnir í rifrildi sín á milli. Þannig á nú einmitt líka að grafa undan mótmælum, skapa sundrung milli mótmælenda. Bílstjórar eru líka ekki bara að berjast fyrir okkar málefnum heldur líka sínum eigin og mér finnst sumir þeirra hafa gengið ansi harkalega fram t.d. sá sem sló í bílinn á Reykjanesbraut, auðvitað í bræði og ham en ...- fight but fight clean!

Marilyn, 3.4.2008 kl. 19:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér er ég, hér er ég

Marilyn
Marilyn
... bara allt fínt, en þú?

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband