Nú er mín örugglega að leita að bílastæði nálægt háskólanum, tilbúin í Sollu Stirðu-regnstakk og í rauðum Latabæjarbol (var ekki hægt að splæsa í annan lit en í fyrra?). Hún ætlar að hlaupa kílómetrann með pabba sínum og horfa svo á skemmtiatriðin.
Í fyrra fórum við líka með hana og ég týndi henni... fann hana loksins í tjaldi fyrir týnda krakka þar sem hún sat í góðu yfirlæti með einhverjum skemmtilegum starfsmanni sem var búinn að gefa henni alls kyns dót í boði Glitnis - svo það margborgar sig að týna krökkunum á Háskólatúninu á MenningarDAG.
Latabæjarhlaupið hafið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Týndi mínum í hittifyrra og fann hann útgrátinn í týndatjaldinu....hef ekki lagt í að fara síðan......
Brussan, 23.8.2008 kl. 15:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.