Þetta er nú meira ruglið - það var hægt að byrja að baka fyrir löngu síðan þegar Kökublað Gestgjafans kom út. Í Kökublaðinu eru miklu fleiri uppskriftir en í Jólablaði Moggans, flottari myndir og umfram allt er kökublaðið bara miklu eigulegra og endingarbetra. Þetta skutlaðist inn um lúguna hjá mér núna í kvöld (ég á greinilega ofvirkan blaðbera) og ég verð að segja að mér fannst blaðið miklu flottara í fyrra og ég nennti að fletta því miklu lengur. Jólablað Morgunblaðsins 2008 var afgreitt í einni klósettferð.
og jájá ég veit að ég er ekkert hlutlaus í þessari umræðu en samt... Kökublað Gestgjafans er geggjað og það fer hver að verða síðastu að ná sér í eintak því það er að klárast úr öllum búðum. Og jólablaðið sem fór í prentun í dag er algjör bomba - B-O-B-A!
Nú er hægt að byrja að baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég er með fettish hvað svona jólablöð varðar og safna öllum svona blöðum. En hef ekki treyst mér í Kökublað Gestgjafans, jú önderstenda Gat reyndar kíkt í það með öðru auganu í saumó um daginn þar sem sessunautur minn var að fletta því og þetta leit allt rosalega vel út :)
Sykurmolinn, 28.11.2008 kl. 08:23
Ég er hjartanlega sammála þér Marilyn. Mér finnst blaðið í ár svakalega innihaldslaust og ekki margar uppskriftir.....
Ég fletti þessu blaði á einni mínútu og fann ekkert svaka spennó!
Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 13:52
fyrir mig að skoða kökublað gestgjafans er eins og að skoða klámblað til að sjá skóna sem konurnar eru í ... algjörlega tilgangslaust, en ég er sammála um að dagblöðin leggja minna en lítið í sín aukablöð núorðið
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 28.11.2008 kl. 16:27
hehe fyrir mig er að skoða kökublað Gestgjafans eins og að mæta í vinnuna ;)
Marilyn, 29.11.2008 kl. 23:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.